Thursday, February 26, 2009

Yesterday I woke up sucking a lemon

Sælt veri fólkið.
Nú er stór helgi framundan. Ég á afmæli á morgun, föstudag, og verð 27 eins og allir sem deyja frægir. Svo á sunnudaginn á ég 10 ára bílprófsafmæli auk þess sem einn af mínum bestu vinum, bjórinn, verður tvítugur.
Nú væri gaman að heyra hvernig ykkur þykir við hæfi að halda upp á svona gríðarmerkilega helgi?
Feel free to comment... já og ef stungið er upp á því að halda upp á þetta með því að drekka bjór, verða frægur, keyra í hringi og drepa sig svo, þá er sú tillaga hér með felld ..fyrirfram!
Eins og vanalega er fimma fyrir að þekkja lagið í titlinum. Góða helgi.

Monday, February 02, 2009

Ísland okkar allra

Það má með sanni segja að Ísland sé land þar sem allt er mögulegt. Land tækifæranna.
Það er til dæmis hægt að komast í ríkissjónvarpið á hverju kvöldi í marga mánuði til þess eins að segja það að maður eigi 11 ára gamalt belti sem er jafn hommalegt í dag og það var árið 1998.
Í landi þar sem slíkt er mögulegt er allt hægt. Við þurfum að hlaupa til og nýta þetta tækifæri. Ég vil sjá nýja stjórnarskrá, nýtt lýðveldi, nýjan þjóðsöng og nýjan þjóðfána fyrir árslok 2009!
Amen.

- Að lokum vil ég bæta því við að ég vil að nýtt fangelsi verði byggt sem allra fyrst, því það er stutt í að slíkar stofnanir verði yfirfullar af jakkafataplebbum. Þetta er atvinnuskapandi auk þessa að vera nauðsynlegt því ekki viljum við sitja uppi með þá á götunum. Ef þetta er of dýrt, gætum við fyllt hvalveiðiskip Íslendinga af plebbum, siglt þeim á haf út og fengið Paul Watson til að klára dæmið.

Wednesday, October 22, 2008

I'm wired to the world, that's how I know everything, I'm super brain, that's how they made me...

Jæja gott fólk.
Nú eru uppi háværar raddir um að endurnýja að einhverju leyti fólkið sem fer með stjórn Íslandsins okkar góða. Það er svo sem ekki furða þar sem margir af okkar ágætu þingmönnum eru orðnir frekar lúnir og þar að auki eru vafalaust til menn sem eru betur til þess fallnir að stjórna þessu landi en þeir sem hafa villst inn á Alþingi hingað til.

Ég held að við ættum að stíga nokkur skref í viðbót. Sjálfsagt væri best ef við réðum faglært fólk, til dæmis frá hinum norðurlöndunum, til að gegna störfum ráðherra og Alþingismenn gætu verið ráðgjafar þeirra. Þannig mætti koma í veg fyrir þá spillingu sem einkennt hefur íslensk stjórnmál síðustu ár. Svipað mætti gera við sveitarfélögin, því þar er spillingin ekki minni.
Flestum þykir þetta vafalaust fulllangt gengið og væla um að með þessu missum við sjálfstæði okkar o.s.frv. sem er að sjálfsögðu hreinasta bull.

Ef við stígum aðeins styttri skref gætum við byrjað á því að hætta að kjósa flokka í þingkosningum. Hvers konar lýðræði er það að þurfa að velja sér einn flokk og geta bara strikað út vitleysingana í þeim flokki sem við veljum?
Það væri nær að hafa bara nöfn á kjörseðlunum, enga flokka og hafa nöfn allra sem eru í framboði í stafrófsröð á seðlunum. Það væri meira að segja sniðugt að hafa nöfn á fólki sem er ekki til og er alls ekki í framboði með á kjörseðlunum, þannig að hægt væri að gera kjörseðla þeirra, sem ekki vita neitt hvað þeir eru að gera og kjósa af handahófi, ógilda.
Það eru bara svo sorglega margir sem kjósa án þess að hafa nokkuð vit á því hvað þeir eru að gera. Ákveðnir stjórnmálaflokkar á Íslandi hafa stílað inn á það í fjölda ára að ná einmitt þessu fólki á kjörstað, til dæmis með því að hringja í fólk stuttu fyrir kosningar og sækja elliært fólk inn á elliheimilin og bjóða þeim í bíltúr á kjördag.

Máli mínu til stuðnings langar mig að biðja ykkur að ímynda ykkur hvernig niðurstöður kosninga yrðu ef nöfnum flokkanna yrði breytt án þess að breyta stefnu flokksins eða skipta um fólk á framboðslistanum. Í þessum kosningum gæti Sjálfstæðisflokkur til dæmis heitið Íhaldssami ættarnafnaflokkurinn, Samfylkingin héti Hægri-vinstri-snú, Vinstri hreyfingin grænt framboð héti Flokkur frelsis, jafnréttis og náttúru og Frjálslyndi flokkurinn myndi bjóða fram undir nafninu Flokkur sjómanna, olnbogabarna og utanveltufólks.
Ég er ekki að gleyma Framsóknarflokknum, það er bara meira uppbyggjandi að hlusta á sóninn í heimasímanum en að heyra Framsóknarmenn tala, svo ég ætla ekki að eyða fleiri orðum á þá.

Ég spái því að niðurstaðan yrði ekki sú sama og ef kosið væri um núverandi nöfn stjórnmálaflokkanna.
Það er að sjálfsögðu ekki lýðræðislegt að banna stjórnmálaflokka enda eru þeir ágætlega til þess fallnir að fólk heimsæki þá og myndi sér skoðanir á hlutunum með því að heyra hvað þeir hafa fram að færa. Það er hins vegar ekki heldur lýðræðislegt í kerfinu eins og það er núna þegar mönnum er bolað út úr flokkum vegna þess að þeir eru ekki tilbúnir til að fallast á hvaða vitleysu sem er sem flokksforystunni dettur í hug. Ég nefni sem dæmi Kristinn H. Gunnarsson.
Ég ætla ekki einu sinni að minnast á prófkjör stjórnmálaflokka, því fyrirkomulag og reglur í kringum þau eru heimskulegri en orð fá lýst.

En jæja, skoðanakönnun hérna í lokin... hvenær eigum við að kjósa næst og á ég að bjóða mig fram? ;)
Fimma fyrir að þekkja textann eins og vanalega, góðar stundir.

Thursday, October 02, 2008

Pæling dagsins:

Ætli Suðu-Lárus* sé bróðir Suðu-Sigfúsar?
Hann hefur allavega gleymt pottunum á grillinu, allt soðið uppúr, bónusgrísinn orðinn viðbrunninn og stefnir allt í að kræsingarnar verði ekki ætar þegar á að fara að smakka á þeim.

*Við lestur þessarar pælingar er ágætt að hafa í huga að Welding er rafsuða á ensku.

Tuesday, September 16, 2008

My stinky shoes, my stinky stinky shoes...

Fyrst að maður sé komment og öll þessi vel völdu orð ákvað ég að sýna smá lit, annan en rauða spjaldið á sjálfan mig og breyta titli bloggsins svona af því að hitt er hætt.
Fyrir það að skilja fyrstu málsgrein þessa bloggs fæst fimma auk þess sem flytjanda titillínunnar er leitað gegn greiðslu einnar fimmu.
Þar sem allt er yfirleitt útskýranlegt á einhvern vísindalegan hátt er ástæða til að geta þess að titillína færslunnar var valin vegna mikillar hálsbólgu sem gefið hefur af sér prýðisgott raddleysi með tilheyrandi blúsfíling síðustu daga.
Fleira var það ekki að sinni en það dettur ef til vill eitthvað fleira smávægilegt hérna inn næst þegar mér fer að leiðast yfir heimadæmunum.

Friday, September 05, 2008

..just please please please please don't hate me

Jæja á maður að hætta þessari vitleysu?
Svona í ljósi þess að ég á yfirleitt 50% af kommentunum á þessari blessuðu síðu er ég að hugleiða að taka Christian Beil á þetta og hætta að blogga í bili. Ef einhver vill hreyfa við mótmælum (eða skilur ekki Beil brandarann) þá skal ég hugleiða það að hætta við að hætta, ef maður sé komment.

Kveðja,
Víkingur (við það að leggja skóna á hilluna)

Monday, July 28, 2008

I've got to get away from here, this is not a place for me to stay, I've got to take my family and find a quiet place

Jæja... Ingunn er búin að fá íbúð á görðunum frá 20. ágúst :) ...og ég fæ gistingu... score!!!
Það er því ljóst að við verðum ekki heimilislaus nema í 11 daga eftir að við komum heim, en ég geri fastlega ráð fyrir því að fá húsaskjól hjá foreldrum mínum og öðru góðu fólki á meðan á því stendur.

Við fengum reyndar íbúð á Skuggagörðum sem þýðir: Hærri leiga, enginn bakarofn = eitthvað minna af jólasmákökum og strætó í skólann í staðinn fyrir að fá sér daglega göngutúr í blíðunni í vetur.
Þetta hefur reyndar einhverja kosti líka... Bónus í labbfæri.... eeeeh.... já þá eru kostirnir upptaldir :p ..nei nei þetta er allavega töluvert betra en að þurfa að leigja á almennum leigumarkaði eða vera heimilislaus... eða að búa annars staðar en í Reykjavík.
Það verður ágætis tilbreyting að vera í 39 fermetrum sem verða troðfullir af drasli, frá því að vera í 70 fermetrunum hérna sem eru frekar illa nýttir... með hlaupabraut frá útidyrunum og inn í stofu.

Ingunn er alveg að missa sig í dugnaði og er að baka kanelsnúða í augnablikinu. Mér gengur eitthvað ekki alveg nógu vel að einbeita mér að bókunum enda var rúmlega 30 stiga hiti í dag og svo mikill raki að maður þurfti að þurrka úr eyrunum reglulega... sem er eitthvað sem ég á alls ekki eftir að sakna eftir 9. ágúst :)

Fimma fyrir að þekkja lagið eða hljómsveitina as usual.

Fleira var það ekki bili, bæ.

Friday, July 25, 2008

With your feet on the air and your head on the ground, try this trick and spin it - yeah!

Bloggandinn hefur ekki komið yfir mig upp á síðkastið og er ennþá víðs fjarri. Ástæðan liggur ekki ennþá fyrir, þannig að mótvægisaðgerðir verða að bíða eitthvað áfram.

Ég fór í munnlegt próf á þriðjudaginn í stálvirkjakúrs sem ég tók í sumar og fékk 2,0 í einkunn, sem jafngildir u.þ.b. 8 á íslenska skalanum. Ég var ánægður með það.

Fleira var það ekki, sæl að sinni.